Já árshátíðin góða er
búin.
> >
Kvöldið hófst með því að Sóley skutlaði mér til Ólafar og
tókum við Þyri með okkur. Þegar til Ólafar var komið var endalaust borinn í
okkur þessi fíni kokkteill sem gerði svo sannarlega það sem hann átti að gera.
Í höllina fórum við rétt um 8 og þá gerðist vax sagan mikla
sem verður síðar í blogginu. Maturinn var alveg frábær en skemmtiatriðin svona
lala en það gerði nú ekki til þegar maður er í svona góðra manna hópi.
Páll Óskar tryllti svo lýðinn gjörsamlega eftir borðhaldið. Um
3 leytið var það þreytt en ánægð stúlka sem settist inn í leigubíl og lét keyra
sig heim. Tifinningin sem fór um æðar mínar þegar ég tók af mér gerviaugnhárin
var ólýsanleg. Enda klárlega flottustu augnhár sem sögur fara af, með steinum á
og alles hehe.
VAX: ekki æskilegt efni á föt né leðurstígvél.
Jú mikið rétt, ég fékk vax yfir mig alla. Stóð fyrir framan höllina þegar ég
kom og spjallaði við Hörpu frænku. Er ekki eitthvað helv útikerti sem springur
með tilheyrandi látum og vaxið ákvað að fara allt yfir okkur Hörpu. Hún þurfti
heim að skipta um föt. Leðurstígvélin mín voru eins og þeim hefði verið dýpt i
heitan vaxpott, einhverjir blettir fóru á leggingsbuxurnar minar og kápan var
eins og hún hefði legið í vaxi. ARG!!!
Það var því skelfingu lostin stúlka sem hélt til skósmiðs í dag, skíthrædd um að
fá dauðadóm yfir fínu og flottu stígvélunum.
Skósi tók stíbbana og sagði stúlkunni að koma aftur kl 5. Á meðan fór stúlkan heim,
reif niður dagskrána, já hún veit að það eru helgispjöll að rífa biblíu
akureyringa niður, mundaði straujárnið og skellti á kápuna fínu. Og jú, kápan
er eins og ný, sést ekkert eftir vaxið. Rúmlega 5 skundaði stúlkan aftur í
bæinn á fund skóarans. Hjartað barðist ótt og títt, en viti menn, fínu og
flottu stígvélin biðu hennar eins og ný. Reikningurinn hljómaði uppá 750 kr. Gott
mál það.
> >
Nóg með það. Lokaverkefnisvinna í fullum gangi. Búnar að
gera kynningarbréfið og setja í tilheyrandi póstkassa. Fann að vísu ekki tvo einstaklinga, spurning hvort þeir séu
fluttir eða bara död!!
Í næstu viku hringjum við svo út spurningalistann og svo fer
allt á fullt. Hins vegar var
leiðbeinandinn okkar að segja okkur að hún væri að fara til Skotlands á
fimmtudag og kemur ekki fyrr en um páska. Ég man nú ekki eftir að hafa gefið
leyfi fyrir því.
Svo er Helga litla að koma á mánudaginn (held ég) og ætlar
að vera yfir páskana, hlakka til að hitta hana.
Veit ekkert hvað ég geri yfir
helgina, það er konukvöld á amor í kvöld, fer kannski með Ásu ef þannig verður gállinn á
mér. Annars átti Eva Ösp vinkona mín afmæli í gær og er búin að bjóða í teiti í
kveld. Til hamingju með afmælið Eva mín.
Jæja nú er best að halda áfram með
þetta blessaða fjölskylduverkefni.
Heyrumst
K